Ráðgjöf frá Björgum
Við erum feðgar, annars vegar verkfræðingur með allnokkra reynslu úr veitugeiranum og hins vegar rekstrarráðgjafi með áratuga reynslu. Við gerum út frá Björgum í Kaldakinn en tökum að okkur verkefni um allt land.
Veitutengd rekstrarráðgjöf
Við aðstoðum rekstraraðila veitukerfa um allt land við að taka krefjandi ákvarðanir sem skila árangri í veiturekstri.
Almenn rekstrarráðgjöf
Við höfum víðtæka þekkingu og áratuga reynslu af rekstri og stjórnun smærri fyrirtækja í fjölbreyttum rekstri.
Þróunaráætlanir veitukerfa
Við aðstoðum rekstraraðila veitukerfa um land allt við að færa rekstur veitnanna í form fyrirbyggjandi viðhalds og framsýnna ákvarðana.
Um okkur
Ráðgjafar Háganga eru feðgarnir Hlöðver Stefán Þorgeirsson og Þorgeir Björn Hlöðversson.
Hlöðver Stefán
Verkfræðiráðgjöf
Hlöðver Stefán er umhverfisverkfræðingur, sérhæfður í straumfræði (e. fluid mechanics) frá Imperial College í Lundúnum. Hlöðver hefur starfað allan sinn feril í veitumálum, einkum fráveitumálum. Samhliða hefur hann sinnt formennsku í Vatns- og fráveitufélagi Íslands.
Þorgeir Björn
Rekstrarráðgjöf
Þorgeir Björn hefur áratuga reynslu af rekstri og stjórnun smærri fyrirtækja og ráðgjöf á því sviði. Helsta áhugamál Þorgeirs seinni árin er uppbygging og rekstur smárra vatnsaflsvirkjana.
Hafðu samband
Sendu okkur línu eða hringdu í okkur og við finnum lausnir saman.
